Leikkonan Taylor Momsen sagði í nýlegu viðtali við tímaritið Elle að hún væri hætt að leika.
Taylor komst á kortið fyrir leik sinn í Gossip Girl en hefur nú þróast út í að vera hálf furðulegur rokkari sem vonast til að geta rokkað út ævina. Þegar blaðamaður Elle spurði hana hvort hún væri með einhver framtíðarplön varðandi leiklistina sagðist hún bara vera hætt.
“Ég er hætt að leika, hætt í Gossip Girl og er núna á tónleikaferðalagi og þetta er í raun það sem mig langar að gera. Vonandi get ég gert þetta það sem eftir er.”
Talsmenn þáttana hafa upplýst aðdáendur um að karakterinn sem Taylor lék, Jenny, verði ekki flautuð af heldur kemur bara ný leikkona í stað Momsen. Spurning hver það verður. Kannski þvottabjörn?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.