Tara Reid (36) er ein af þessum einkennilegu Hollywood konum sem gerði einhvernvegin ekkert til að verða fræg.
Hún lék í einni mynd sem sló í gegn og eyddi svo næstu tíu árum í eiturlyf, drykkju og fegrunaraðgerðir (sem heppnuðust ekkert sérstaklega vel).
Það er fleira sem heppnast ekki svo vel hjá greyið Töru en það eru samböndin og núna er hún komin með nýjan.
Sá er sextugur skartgripasali að nafni Fawaz Gruosi.
Fawaz er sólbrúnni en allir hnakkarnir í Svíþjóð til samans og af einhverjum ástæðum telur Bíbí engar stórkostlegar líkur á að sambandið muni endast. Tara virkar ekki eins og ‘gömul sál’ sem hefur fundið jafningja sinn í Fawaz og Fawaz. Já, maður spyr sig. Hvað fann hann? En hver veit. Kannski drekka þau te saman á morgnanna, horfast í augu og upplifa þessa einu sönnu ást.
Smelltu hér til að sjá myndir af Töru og Fawaz koma úr bátapartý frá Diddy sem lagði snekkjunni við höfnina í Cannes, þar sem allt er að gerast um þessar mundir.
Hvað heldur þú –
[poll id=”47″]Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.