Leikkonan og fyrrverandi eiginkona Tom Cruise, Katie Holmes er búin að leika í síðasta sinn á Broadway í bili.
Sýningum er lokið á leikritinu “Dead Accounts” en það er búið að vera á fjölum Broadway síðan 29.nóvember síðastliðinn. Leikritið átti reyndar að vera í sýningu fram í lok febrúar en sökum lélegrar miðasölu var ákveðið að hætta sýningum sex vikum fyrir áætlaða lokasýningu.
Katie setti fram sparibrosið þegar hún mætti á síðustu sýninguna en þetta eru án efa vonbrigði fyrir leikkonuna. Þetta er fyrsta verkefni hennar eftir skilnaðinn við Tom og hún hefur örugglega viljað að sýningin hefði gengið betur.
Katie er þó að sjálfsögðu með nokkur verkefni sem hún mun snúa til eftir sýninguna en Tom bannaði Katie víst að taka að sér hlutverk þannig að daman getur tekið að sér hvaða verkefni sem henni býðst núna. Frelsið er yndislegt!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig