Staupasteins leikkonan Kirstie Alley hefur vakið heimsathygli að undanförn fyrir það hvað hún er komin í stórkostlegt form.
Kirstie, sem er sextug, léttist um heil 45 kíló á einu ári og er nú farin úr fatastærð 14 niður í 6 (eða 8-10 eftir merkjum).
Hún segist aftur vera komin í elementið sitt og að hún hafi alls ekki áttað sig á hvert hún var komin líkamlega.
En hvernig fór hún að þessu?
Í viðtali við US Weekly segist Kirstie hafa lagt á ráðin með læknum og næringarfræðingum enda höfðu tilraunir hennar fram að því ekki borið árangur. Hún vildi gera eitthvað róttækt í málunum og bjó því til áætlun. Einnig neytti hún drykkja sem seðja hungurtilfinninguna og dansaði í um þrjár klukkustundir á dag með mannskapnum í sjónvarpsþáttunum Dancing with the stars, en þessir þættir hafa vakið gífurlega athygli í Bandaríkjunum og komið mörgum selebbum í gott sjeip. Til dæmis Kelly Osbourne og fleirum.
Kirstie er meðal þeirra flottustu sem hafa komið úr átakinu en daman frumsýndi nýja holdafarið á tískupöllum tískuvikunnar í New York þar sem hún pósaði í kóngabláum kjól.
Snilld.
Smelltu HÉR til að sjá hana í kjólnum og HÉR til að sjá myndir af Hollywood stjörnum sem grenntust (sumar án þess að þurfa þess.)
Og hér er Kirstie í Dancing with the stars…
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=8qEYY3hEWuU[/youtube]
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.