Litla krúttíparið Jennifer Aniston og Justin Theroux voru að leigja sér tveggja herbergja einbýli í Beverly Hills.
Það eru ekki beint lætin í þeim en eflaust eiga þau nægilegan sand af seðlum til að búa meira blingbling. Þá myndi maður gera dingdong á blingbling bjöllu og spyrja er Jennifer heima en ef það er bjalla er hún örugglega úr hnetu, eða einhverju lífrænu.
Í staðinn fyrir að vera ‘megastar style’ minnir þetta á húsið hennar Þuru frænku í Árbæ. Flott alveg þannig… en ekki beint VIP -Halló, ég heiti Jennifer Aniston og er viðbjóðslega rík. Vonandi gerir hún betur næst. Nema þau séu orðnir kreppuhippar með kreppuhippa attitjúd… sem er auðvitað mögulegt. Kannski með geit í garðinum?
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.