Umfjöllun um skilnaðardeilu Tom og Katie hefur róast talsvert upp á síðkastið en nokkrar nýjar fréttir hafa litið dagsins ljós…
MÁTTI RÁÐA SÉR SJÁLF
Katie var víst orðin ansi hrædd um að Suri væri að breytast í litla frekjudós, samkvæmt Vísindakirkjunni áttu að koma fram við börnin eins og fullorna og leyfði Tom Suri að gera hvað sem hún vildi. Hún mátti fá ís í kvöldmat, ráða sínum eigin háttartíma og klæðast því sem hún vildi algjörlega sjálf. Katie var komin með nóg af þessu rótleysi og vill að dóttir sín alist upp við rútínu, reglu og aga.
ALLTAF MEÐ TENGDÓ
Katie var orðin þreytt á fjölskyldu Tom en hann eyðir allt að sex mánuðum á ári við tökur á kvikmyndum og á meðan hann var í burtu þá voru mamma hans eða systir hjá Katie. Hún var orðin þreytt á að eyða meiri tíma með þeim en honum sjálfum.
VILL DEILA VISKUNNI
Tom mun ekki fela Vísindakirkjuna fyrir Suri en hann er afar stoltur af sinni trú og mun því halda áfram að miðla “visku” Vísindakirkjunnar til hennar.
BAÐ TIL GUÐS
Katie bað til Guðs að hún yrði kona Tom ung að aldri. Náinn æskuvinur Katie hefur stigið fram í dagsljósið og sagt frá því að Katie hafi verið afar hrifin af Tom þegar hún var yngri og óskaði þess að verða hans. Vinir Katie voru afar hissa á því þegar hún tók upp trú Vísindakirkjunnar en hún var alin upp í strangri Kaþólskri trú.
ÆTLA AÐ VERA STILLT
Tom og Katie verða að tala saman Suri vegna næstu árin og hafa ákveðið að reyna að tala saman eins og prúðar manneskjur þegar þau þurfa að ræða þarfir hennar.
Já þannig er nú það, við skulum vona að Suri litla fái að dafna og foreldrarnir rugli hana ekki of mikið í ríminu með mismunandi trú og uppeldi.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.