Katie Holmes er enn í New York með Suri og nóg að gera hjá þeim mæðgum. Þær hafa farið á listasöfn, eytt tíma með mömmu Katie, fengið sér ís og farið göngutúra um borgina.
Tom Cruise hefur ekki enn hitt dóttir sína eftir að Katie sótti um skilnað en Katie er afar dugleg að fara með Suri í allskyns frístundir til þess að stytta henni stundir. Tom er á fullu að tala upp myndina sína Oblivion sem hann tók meðal annars upp hér á landi og hefur því ekki komist frá til að hitta Suri.
Nú hefur komið í ljós að Suri mun stunda nám við Convent of the Sacred Heart in Manhattan sem er Kaþólskur stúlknaskóli og ætlar Katie að vera áfram í New York þar sem skólinn er staðsettur í Manhattan.
Það er greinilegt að Tom og Katie hafa komist að samkomulagi um þetta en Suri litla á að fá sem “eðlilegast” uppeldi sem völ er á núna og vera frjáls undan furðulegheitum vísindakirkjunnar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig