Það er sífelld pressa á okkur konum að líta sem best út og sumar halda að því grennri sem þær eru, því fallegri.
Þegar við höfum verið í okkar besta formi þá viljum við að sjálfsögðu ALLTAF vera í því formi en það tekst ekki alltaf þar sem við gleymum oft að hlúa að okkur sjálfum, passa mataræðið og hreyfa okkur.
Stjörnurnar í Hollywood finna að sjálfsögðu fyrir þessari pressu og gera hvað sem er til þess að þyngjast helst ekki um eitt gramm á milli daga, vikna og jafnvel ára. Sumar dömur hafa þó gengið fulllangt í því að grenna sig (eða jafnvel svelta sig) og líta alls ekki vel út með aðeins skinn og bein utan á sér.
Ef við meðaljónurnar finnum fyrir þessari pressu dags daglega frá samfélaginu þá get ég ekki ímyndað mér það hvernig það er að vera stórstjarna í Hollywood þar sem papparassar eru sífellt á hælunum á þeim. Breytir það engu í hvernig ástandi stjörnurnar eru, því verra ástand því betra og meiri peningar fyrir papparassana.
Hér að neðan er myndasafn af dömum í Hollywood sem eru nánast ekkert nema skinn og bein.
__________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig