Það þykja tíðindi í glysborginni ef hjón endast saman í meira en fimm ár en nokkrar stjörnur skildu á árinu 2012 og fengu sumir skilnaðir meiri athygli en aðrir.
Eins og allt landið og heimurinn veit skildu Tom Cruise og Katie Holmes á meðan Tom var staddur hér á landi við tökur á kvikmyndinni “Oblivion”. Skilnaðurinn kom Tom í opna skjöldu en Katie hafði skipulagt hann í þaula og hófst mikið fjölmiðlafár og papparassaleikur eftir að skilnaðurinn hafði verið gerður opinber. Síðasta myndin sem náðist af þeim saman var tekin hér á landi og hefur sú mynd farið út um allan heim.
Kristen Stewart kom sér í heljarinnar klandur þegar hún hélt framhjá Robert Pattinson með leikstjóranum Rupert Saunders en hann leikstýrði henni í kvikmyndinni “Snowwhite And The Huntsman”. Myndir náðust af Kristen og leikstjóranum saman í innilegum atlotum og allt varð vitlaust hjá Twilight aðdáendum sem kölluðu Kristen öllum illum nöfnum og vildu helst ekkert með hana hafa. Kristen gaf út tilkynningu þess efnis að hún iðraðist gjörða sinna á meðan að Robert lét lítið fyrir sér fara og flúði til Bretlands. Parið virðist þó vera byrjað aftur saman núna og getur hreinlega ekki verið án hvors annars.
Heidi Klum og Seal skildu eftir sjö ára samvist en þau virtust alltaf vera afar hamingjusöm og endurnýjuðu meðal annars brúðkaupsheitin sín á hverju ári með pompi og prakt og héldu heljarinnar Hrekkjavökupartý. Heidi fór síðan að deita lífvörðinn sinn en Seal kallinn var alls ekki sáttur með það hversu fljótt Heidi var að ná sér í annan mann og “fara í bólið” með honum eins og hann sagði sjálfur.
Leikarahjónin Danny Devito og Rhea Perlman skildu eftir þrjátíu ára hjónaband en Danny leiðist víst ekki athygli annara kvenna og var Rhea komin með nóg af hegðun hans og vanvirðingu í hennar garð. Hjónin virðast þó vera að reyna að laga samband sitt núna og vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að ná saman aftur enda búin að vera saman bróðurpart ævinnar.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig