Við fjölluðum um það hér að stjúpsonur Usher hefði lent í alvarlegu Jet-Ski slysi í Lake Lanier. Drengurinn er nú látinn eftir að móðir hans Tameka tók hann úr öndunarvél.
Kile Glover var ellefu ára. Hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús í Atlanta þar sem að kom í ljós að hann var ekki með neina heilavirkni og var settur beint í öndunarvél. Fimmtán ára gömul stúlka slasaðist einnig í þessu slysi en hún handleggsbrotnaði og hlaut skurð á höfuðið.
Vinur fjölskyldunnar Jeffrey S. Hubbard var sá sem keyrði yfir börnin og lögreglan rannsakar nú þátt hans í slysinu.
Usher ól Kile upp í sjö ár og lítur hann á hann sem sinn eigin son. Tameka og Usher standa í harðri skilnaðardeilu núna en láta sér lynda saman á meðan á þessu stendur.
Læknar ráðlögðu Tameku að taka Kile úr öndunarvél og lést hann í gærmorgunn.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.