R&B söngvarinn Usher stendur þessa daganna í harðri skilnaðardeilu við Tameku Foster.
Þær deilur hafa nú verið settar til hliðar þar sem sonur hennar úr fyrra sambandi lenti í alvarlegu slysi.
Þetta hörmulega slys átti sér stað þegar drengurinn var að synda á vatni sem kallast Lake Lanier og er staðsett í Georgiafylki. Samkvæmt heimildum var Glover, 11 ára, að synda í sjónum þegar maður á Jet-Ski farartæki birtist allt í einu og keyrði utan í hann.
Læknar á spítalanum í Atlanta hafa þegar úrskurðað drenginn heiladauðan (brain dead) samkvæmt heimildum vestanhafs og er honum haldið sofandi í öndunarvél.
Frekari upplýsingar hafa ekki verið gefnar upp í sambandi við slysið eða líðan drengsins.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig