Kids Choice verðlaunahátíðin fór fram nú á dögunum og skinu stjörnurnar skært á rauða dreglinum.
Þessi verðlaunahátíð er þekkt fyrir að vera meira “casual” en aðrar enda er markhópurinn börn.
Það sem einkennir hátíðina er græna slímið eða að vera “slímaður” uppi á sviðinu en þegar verðlaunahafar mæta upp á svið til þess að taka á móti verðlaunum hafa þau ekki hugmynd um það hvort þau verða slímuð eða ekki, þau eru ekki einu sinni óhult í sætum sínum og geta því átt von á slímskvettunni hvernær sem er, ungum áhorfendum til mikillar gleði.
Hollywoodstjörnur ásamt frægum tónlistarmönnum og fleira VIP fólk úr mætti á hátíðina og margir voru klæddir fallegum sumarfötum í allskonar björtum litum enda vorið á leiðinni.
MYNDIR:
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig