Að vera með fallegar, beinar og hvítar tennur þykir jafn mikilvægt í Bandaríkjunum og að vera í hreinum fötum.
Tennur eru þar einskonar stöðutákn og þú kemst ekki langt með skakkar gular tennur og skakkt bros.
Þannig fólki er varla treystandi?
Evrópubúum hefur ekki þótt þetta eins mikið mál en í seinni tíð er þetta að breytast. Íslendingar, Bretar og aðrir sem hingað til hafa sætt sig við skakkar og skrítnar tennur eru farnir að flykkjast til tannlæknis og æ algengara verður að sjá fullorðið fólk með spangir. Tannréttingar taka ekki eins langan tíma og áður og einnig er hægt að fá spangir sem ber lítið á.
Hér eru nokkrar forvitnilegar myndir af frægu fólki – fyrir og eftir tannviðgerðir:
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.