Mæðurnar í Hollywood leggja hart að sér að halda föngulegum línum sínum enda þarf að kosta öllu til að fá álitleg hlutverk.
Þær leggja ýmislegt á sig til þess að fá hasarkroppinn aftur eftir barneignir með ströngu mataræði, jóga, hlaupum, lyftingum og svo mætti lengi telja.
Margar af þessum stjörnum eiga þrjú til fjögur börn, eru með sixpakk svokallaðan og alls ekki feimnar við að sýna það á ströndinni, enda búnar að leggja hart að sér til þess að ná líkamanum í sitt gamla form.
Kannski vonast margar til að fá papparassana á eftir sér, svona til að sýna afraksturinn af erfiðinu…?
Jessica Alba (31) Heidi Klum (39), Halle Berry (46), Jennifer Lopez (43) og Pink (33) eru meðal þeirra sjóðandi hasarkroppa sem hér má sjá en þær sýna það bæði og sanna að það þarf ekki endilega að gefast upp fyrir elli-kerlingu svo lengi sem konur nenna að hafa fyrir því að hafa stinnan og grannan skrokk. Þú getur verið fit á öllum aldri! Sjáðu bara Halle Berry sem á fjögur ár í fimmtugt, nú eða Madonnu sem er 54 ára!
Smelltu á myndirnar til að sjá þessar ofurkonur spóka sig um á baðfötum…
_______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig