Christopher, bróðir Kevin Federline, sem á að vera barnsfaðir Britney Spears hefur komið fram og sagt að að hann sé faðir Sean sem er eldri drengur þeirra fyrrverandi hjóna.
Christopher sótti um nálgunarbann gegn Britney þann 18. desember síðastliðinn, hann segir að hún sé búin að stela frá honum, kúga hann og áreita hann í gríð og erg. Hann segir einnig að hún sé algjörlega stjórnlaus og klikkuð!
Christopher var í heimsókn hjá Kevin bróður sínum um daginn þegar Britney kom að sækja strákana þeirra. Veski Christophers var á borðinu og að hans sögn stal hún kreditkorti úr því, notaði kortið og eyddi morðfjár og þegar hann spurði hana út í stuldinn þá hló hún að honum, sagði að Kevin hefði eyðilagt líf sitt og að sagði að Christopher væri með lítið typpi.
Hún hafi síðan einnig sagt að ef hann færi með þetta mál til lögreglunnar þá myndi hún segja öllum heiminum að hann væri faðir Sean en ekki Kevin.
Christopher segir að hann játi að hafa sofið hjá Britney og sé faðir Sean en að almenningur þurfi samt ekki að vita það ?? Jahá!
Britney og Christopher voru saman á meðan Britney og Kevin voru gift en Christopher er einnig giftur og var það á meðan á framhjáhaldinu stóð þannig að þetta er orðið ein heljarinnar flækja og spurning hvernig þetta mál endar alltsaman?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig