Tökur eru hafnar á þáttunum “Modern Family” og leikkonan Sofia Vergara leikur eitt af aðalhlutverkum en leikarar þáttarins eru nýbúnir að landa feitri launahækkun fyrir leik sinn.
Sofia er í viðtali við Allure tímaritið nú í septembermánuði.
Sofia segir meðal annars þetta um það að fara niður fyrir kjörþyngd sína:
“Rassinn á mér og brjóstin minnka þegar ég grennist, það er allt í lagi að brjóstin minnki aðeins en þegar ég er með minni rass þá er ég ekki ánægð með hann. Ég er frá Suður Ameríku og ef þú ert ekki með stóran rass þar þá er ekki litið við þér.”
Sofia er í raun ljóshærð og án maskarans eru augnhárin skjannahvít og hún með afar ljósa húð. Núna er hún búin að lýsa hárið sitt aðeins þannig og henni finnst það henta sér betur þar sem hún er svo ljós fyrir.
Framkoma leikkonunnar er afar kynþokkafull og Sofia segir að strákavinum hennar líka þessi framkoma vel.
Hún heldur því fram að þó að kona sé ekki ungfrú heimur eigi hún samt sem áður rétt á því að finnast þú vera sexý.
Hún segir margar vinkonur sínar einnig hafa þessa framkomu, þær séu kannski engar fegurðardrottningar en hafa samt eitthvað við sig sem heillar karlpeninginn.
Að mati Sofiu er það að vera munúðarfull og kynþokkafull eitthvað sem heillar aðra í fari þínu – þannig ertu óstöðvandi og átt alls ekki að fela þá hlið fyrir öðrum. Ef þér líður vel í eigin skinni þá laðar þú aðra að þér.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig