Sofia Vergara er fædd í Kólumbíu og verður fertug núna í sumar en það er óhætt að segja að daman beri aldurinn vel.
Hún er líka með yndislega fallegar línur og oftar en ekki í fallegum kjólum á rauða dreglinum. Henni finnst bossinn vera uppáhalds líkamsparturinn sinn, eða svo sagði hún í viðtali fyrir Golden Globe verðlaunin nú í janúar.
Sofia leikur í gamanþáttunum Modern Family þar sem hún fer á kostum sem eiginkona eldri manns en áður en hún kynntist honum var hún einstæð móðir. Kólumbíski hreimurinn fær að njóta sín í þáttunum sem og lögulegu línurnar. Hún kom fyrst á sjónarsviðið í Bandaríkjunum árið 2003 en þá lék hún í mynd sem heitir Chasing Papi en áður starfaði hún sem sjónvarpsþáttakynnir í Kólimbíu.
Leikkonan hefur verið tilnefnd til Emmy verðlauna, sem og Golden Globe og vann hún SAG verðlaunin árið 2010 fyrir leik sinn í Modern Family.
Sofia Vergara hefur náð inn á marga lista yfir fallegasta fólk veraldar og ég er nokkuð viss um að þessi kólumbíska kona sé rétt að byrja láta að sér kveða.
__________________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig