Sofia Vergara hefur loksins staðfest að hún sé trúlofuð unnusta sínum Nick Loeb þannig að þá er sá draumur úti fyrir ótal aðra drengi.
Sofia birtist í sjónvarpsviðtali á dögunum þar sem hún staðfesti að þau væru trúlofuð. Þau stefna á brúðkaup en hvenær það verður er enn ekki ákveðið þar sem að þetta er nýlega skeð, Nick bað hennar á 40 ára afmælisdegi hennar.
Sofia gaf það í skyn að börn væri í framtíðarplani þeirra og en fyrir á Sofia 20 ára gamlan son úr fyrra hjónabandi.
Tökur eru þegar hafnar á nýjustu seríu af “Modern Family” og verður hún frumsýnd í haust en Sofia leikur hina frábæru Gloriu sem er einmitt ófrísk og reynir hvað hún getur að fela barnakúluna með ófyrirséðum afleiðingum.
Ég veit ekki með ykkur en ég bíð spennt eftir nýrri seríu!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig