Lady Gaga finnst alltaf gaman að gefa heiminum aðeins á’ann með djafri framkomu og furðulegheitum.
Hvort sem um er að ræða kjól úr kjöti, karlmannsgervi eða myndir sem borderlæna á því að vera klám. Þú getur stólað á Stephanie Germanotta, öðru nafni Lady Gaga, þegar kemur að smá sjokkeringum.
Hér eru nokkur test-skot af myndaþætti sem hefði farið í septemberheftið af Japanska Vouge ef Lady Gaga hefði mátt ráða en ritstjórnin ákvað að hafa þetta ekki með. Haaa? Akkkuru?
Í staðinn birtu þau myndir af henni sem Joe Calderone og í kjötkjólnum fallega. Sjálf segist Gaga elska kjaftasöguna um að hún sé sjálf tvíkynja en hún er klárlega nokkuð “intresting” sem karlmaður.
Næst væri spennandi að sjá myndir af henni sem berrössuðum og bundnum karlmanni í kjötkjól.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.