David Beckham er ekki aðeins hamingjusamlega giftur Victoriu, á fjögur falleg börn og farsælann fótboltaferil – hann er einnig sjóðandi heitur og fagur á bókinni einni fata!
Frá og með fimmtudeginum mun risastór gullstytta af David birtast hér og þar um í San Fransisco, New York og Los Angeles.
Tilefnið er ný lína af nærfatalínunni hans “David Beckham Bodywear” fyrir H&M sem er væntanleg með haustinu.
Auglýsingaherferðin er klár en þessar myndir eru teknar ‘á bak við tjöldin’.
Lítið hefur verið gefið upp í sambandi við nýju línuna en við bíðum spenntar að sjá kappann enda ekkert vont fyrir augun, ef svo má að orði komast.
Hér að neðan getur þú séð myndir af styttunni og smá á bakvið tjöldin.
__________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig