X-Factor keppnin er að hefja göngu sína á ný á miðvikudaginn vestanhafs og Simon Cowell segir spennandi vetur framundan.
Britney Spears og Demi Lovato bættust í hóp dómara þennan veturinn og að sögn Simons þá er Britney ekki saklaus snót heldur með bein í nefinu og segir sína meiningu. Hann segir einnig að allir dómararnir séu hreinskilnir og segi það sem þeim finnst um keppendurnar þeir eru ekkert að tala “undir rós”. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem var haldinn í tilefni af nýju þáttaröðinni.
En Britney kom honum hvað mest á óvart í öllu ferlinu, hann segir að hún sé afar óútreiknanleg og þú veist aldrei hvað hún segir eða gerir næst. Hún tekur dómarastarfið afar alvarlega og er frekar kvikindisleg og oft vond á köflum. Hann segir einnig að það sé afar erfitt að gera henni til geðs, hún er enga stund að segja nei við keppendurnar ef henni líkar ekki við það sem þeir hafa fram á að færa.
Vel gert hjá Britney sem er loksins að koma út úr skelinni og lítur út fyrir að vera hamingjusamari en nokkru sinni fyrr.
Hér að neðan má sjá Britney hjá Ellen Generes ásamt Simon Cowell þar sem að “Gangman Style” söngvarinn Psy kennir Britney danssporin við lagið en Britney Twittaði fyrir stuttu að henni langaði til þess að læra dansinn.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=QZmkU5Pg1sw[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig