Ef marka má slúðurmiðla vestanhafs þá stendur þetta heima. Kynbomban Carmen Electra og söngvaradómarinn kaldhæðni eru að slá sér upp í glysborginni.
Simon og Carmen sáust á stefnumóti á laugardag og sunnudag og virtust þau afar innileg, þau töluðu mikið saman, drukku vín og kysstust og enduðu víst með því að fara í hörkukelerí!
Carmen og Simon kynntust þegar Carmen var gestadómari í Britain’s Got Talent en Simon er dómari í þeim þáttum. Carmen sagði þáverandi kærasta sínum upp stuttu seinna og þá fór orðrómur á kreik að þessi tvö væru að slá sér saman en það neistaði á milli þeirra þegar Carmen var gestadómari í þættinum.
Þegar Simon var spurður hvers vegna Carmen varð fyrir valinu en ekki einhver önnur þá svaraði hann:
“Hún er með besta sett af………tönnum sem ég hef séð”…
Ég er ekki frá því að skynja smá kaldhæðni í svari hans en daman er þekkt fyrir sín föngulegu brjóst.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig