Söngkonan Sheryl Crow hefur tilkynnt það að hún hefur greinst með heilaæxli, þetta kemur fram í blaðinu Las Vegas Review Journal.
Sönkonunni stóð orðið ekki á sama þegar hún var farin að gleyma texta í lögum sínum en á meðan hún flutti lagið sitt “Soak Up The Sun” á tónleikum í Flórída þá mundi hún ekki sum orðin í textanum og fann því að það var ekki allt með felldu og lét athuga málið. Í skanna (MRI) kom í ljós æxli við heila, æxlið er góðkynja og þarf sönkonan ekki að fara í aðgerð vegna þess.
Sheryl hefur háð baráttuna við krabbamein áður en árið 2006 greindist hún með brjóstakrabbamein sem hún sigraðist á. Við vonum að allt fari vel!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig