Móðir Jack Osbourne, Sharon brotnaði gersamlega niður í sjónvarpsþættinum “The Talk” á dögunum þegar hún ræddi við þáttastjórnendurna um son sinn Jack en hann greindist með MS sjúkdóminn fyrir skemmstu.
Í viðtalinu er Sharon gersamlega miður sín og kemur varla upp orði en hún hefur verið meðstjórnandi í þættinum með hléum.
Jack tilkynnti þetta fyrir alheiminum í gær en hann greindist með MS aðeins tveimur vikum eftir að hann og unnusta hans eignuðust sitt fyrsta barn. Í viðtali við People Magazine segist hann hafa verið reiður og hugsað með sér af hverju núna?
Núna er tíminn sem hann á að njóta sín með fjölskyldunni sinni og það á að skipta mestu máli en ekki þessi sjúkdómur. Fyrstu dagarnir eftir greiningu fóru í mikla reiði en síðan ákvað hann að það þýddi ekkert annað en að aðlagast og halda áfram. Hann ætlar sér að yfirstíga þetta eins og hann mögulega getur. Læknar hafa skipað honum að slaka sem mest á og vera í rólegheitum-ekki fara í aðstæður sem æsa hann upp þar sem að stress hefur slæm áhrif á sjúkdóminn.
Hér að neðan má sjá brot úr viðtalinu við Sharon.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=YLknGsO3raI[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig