Söngkonan Shakira og kærastinn hennar Gerard Piqué hafa birt nokkrar fallegar myndir af þeim saman þar sem að Shakira sýnir óléttukúluna sína með stolti.
Shakira fór ekki hefðbundnar leiðir í myndbirtingunni og stjórnaði því alveg hvaða myndir færu á vefinn og hvaða myndir yrðu ekki birtar, hún birti myndirnar gegnum Twitter og hvatti fólk einnig til þess að taka þátt í barnagleði þeirra eða “baby shower”.
Barnagleðin er þó ekki með hefðbundnu sniði því Shakira er talsmaður Unicef og biður fólk að gefa frjáls framlög til Unicef, fólk getur einnig gefið vigt, moskítónet og margt fleira.
Gerard og Shakira eru ekki á flæðiskeri stödd þegar kemur að peningum og fannst þeim þetta því tilvalin leið til þess að gefa eitthvað til annara og láta gott af sér leiða í leiðinni.
Shakira setti persónuleg skilaboð til aðdáenda sinna á síðunni:
” Eins og þið vitið öll þá eigum við von á okkar fyrsta barni á næstunni og til að fagna komu þess í heiminn höfum við sett á fót “sýndarbarnagleði” (virtual baby shower) í samvinnu við UNICEF. Við höfum verið svo heppin að hafa fengið fallegar gjafir handa okkar barni og viljum við því biðja ykkur um að hjálpa okkur að styðja önnur börn í heiminum sem eiga um sárt að binda og búa við fátækt”.
Shakira bætir því við að peningurinn sem fólk lætur af hendi til styrktar Unicef muni meðal annars fara í bólusetningar á börnum á fátækum svæðum.
Síðan bætir hún við ” Með fyrirfram þökk og takk fyrir stuðninginn”. Shakira segir að hver einasta verðandi foreldri vonist til þess að barn þess muni alast upp í góðum aðstæðum en það séu því miður ekki allir svo heppnir og þurfi því á aðstoð að halda. “Saman getum við breytt því”.
Ótrúlega fallegt hjá parinu sem hefur verið saman síðan í mars 2011 og hér getur þú styrkt barn fyrir UNICEF.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig