Shakira er þekkt fyrir sítt, ljóst , krullað og kynþokkafullt hár. Ekki allir vita að náttúrulegi háraliturinn hennar er þó svartur!
Shakira hefur heldur betur tekið stefnuna í hina áttina og skartar stuttu, svörtu, sléttu en þó kynþokkafullu hári í nýjasta myndbandi sínu. Myndbandið er ekki komið út ennþá en kemur von bráðar.
Klippingin minnir á Miu Wallace úr Pulp fiction, goðsagnakennd klipping. Mér finnst Shakira mega flott með þessa nýju klippingu sem kallast BOB á fagmálinu!
Stella Björt útskrifaðist úr Borgó 2010 og starfar nú sem verslunarstjóri í Topshop í Smáralind. Þess á milli tekur hún að sér stílistaverkefni og hefur tekið námskeið í stíliseringu í London College of Fashion en stefnir á fullt nám þar í framtíðinni. Stella er tvíburi.