Kólumbíska söngkonan Shakira virðist vera búin að eignast son ef marka má Twitter færslu kærasta hennar Gerard Pique.
Gerard Twittaði eftirfarandi:
“Sonur okkar er fæddur, við erum afar hamingjusöm, takk fyrir allar kveðjurnar”.
Miklar vangaveltur hafa verið um það hvort að þetta sé hreinlega gabb því 29 des er svokallaður “aprílgabbdagur” á Spáni og í hinni Latínsku Ameríku og hann Twittaði skilaboðin á þeim degi.
Daginn eftir lét Gerard vita á Twitter að þetta hafi í raun og veru bara verið allt í plati!
Hann náði samt sem áður að plata ansi marga fjölmiðla með Twittinu sínu en Shakira á ennþá nokkra mánuði eftir af meðgöngunni sinni.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig