Kólumbíska söngkonan Shakira ber barn undir belti en þetta tilkynnti hún á Facebook síðu sinni í vikunni.
Shakira hefur verið í sambandi við knattspyrnumanninn Gerard Piqué síðan í fyrra og parið svífur á bleiku skýji yfir óléttunni. Ástin spyr ekki um aldur og er Gerard tíu árum yngri en Shakira eða 25 ára gamall, hvern grunaði að Shakira væri 35 ára gömul?? -Hún lítur ekkert smá vel út!
Shakira ákvað í kjölfar tilkynningarinnar að taka því rólega næstu daga en hún er komin um fjóra mánuði á leið.
Nýjustu fregnir úr herbúðum Shakiru eru að hún mun taka við starfi Cristinu Aguileru sem dómari í næstu þáttaröð af “The Voice” og er hún afar spennt að fá að spreyta sig í því hlutverki.
Til hamingju krúttlega par!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig