Selena Gomez er á forsíðu Elle í blaðinu sem kemur út þann 19 nk en þar talar hún meðal annars um það hvernig það var að alast upp í fátækt.
Selena lenti oftar en ekki í því að verða bensínlaus á hraðbrautinni, tankurinn tómur vegna peningaleysis. En hún segir jafnframt að mamma hennar hafi verið dugleg að spara til að fara með hana á söfn, tónleika og kenna henni um heiminn og hvað er raunverulegt.
Hún vill ekki ræða mikið um kærastann sinn Justin Bieber en það er hluti af lífi hennar sem hún vill halda út af fyrir sig.
Selena ræðir líka um Disney árin en að hennar sögn telja margir að þú getir ekki unnið fyrir Disney nema að þú dansir, syngir og leikir eins og þeir vilja. Selena gerði hinsvegar það sem hún sjálf vildi gera og segir það af og frá að liðsmenn Disney stjórni fólki eins og strengjabrúðum.
Hér má lesa nánar um viðtalið við Selenu og að neðan má sjá myndir úr blaðinu þar sem Selena er stórglæsileg.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig