Leikkonan Scarlett Johansson er á forsíðu maí tölublaðs Vogue en þar ræðir hún skilnað sinn við Ryan Reynolds, “sambandið” sem hún átti við sean Penn og nektarmyndirnar sem voru teknar af símanum hennar frá hakkara.
Scarlett segir skilnaðinn við Ryan hafa verið hræðilegan. Að hún hafi haldið að líf sitt myndi þróast með ákveðnum hætti og svo áfallið að komast að því að svoleiðis verði það ekki.
Hún hélt að hún þyrfti aldrei að ganga í gegnum neitt jafn erfitt og skilnað og talar um hvernig enginn geti leiðbeint þér í gegnum slíkan hlut eða gefið þér rétt svar við neinu sem viðkemur jafn erfiðu málefni. Skilnaður sé jafnframt mjög einmanalegur, jafnvel það einmanalegasta sem þú munt gera á ævinni. Hluta af henni finnst eins og þetta hafi ekki gerst en að tilveran batni með tímanum þó það sé undarlegt að hafa ekki makann með sér öllum stundum. Hún segir að það séu engar reglur sem segja til um hversu lengi þú munir vera að jafna þig eftir slíkt áfall.
Johansson talar líka um “samband” hennar við Sean Penn en þau voru saman í stuttan tíma eftir skilnað hennar við Ryan. Samkvæmt henni þá skilgreindu þau aldrei samband sitt og eyddu bara tíma saman. Það sem þau áttu saman var mjög opinbert, ólíkt hjónabandi hennar við Ryan og henni fannst það vera frekar óþægilegt en hún segir jafnframt að Sean Penn sé einstakur.
Í sambandi við myndirnar sem náðust af henni naktri úr símanum hennar segir hún það hafa verið áfall og að sér hafi liðið mjög illa yfir þessu en ákvað þó að láta það ekki aftra sér frá að fara út á meðal almennings. Þrátt fyrir það hafi hún ekki getað forðað sér frá þeirri hugsun að allir hafi séð hana nakta, til dæmis þegar hún fór út að borða eða annað. En hún komst yfir það eins og annað og heldur ótrauð áfram í borg draumanna.
Næst er hægt að sjá hana í ævintýramyndinni Avengers sem fær heila 9.5 á imdb. Geri aðrir betur!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig