Leikkonan Scarlett Johansson segist aldrei hugsa um hjónaband þeirra Ryan Reynolds en Ryan gekk að eiga Blake Lively á síðasta ári.
Scarlett segist hafa elskað samband þeirra Ryan en segir jafnframt að hjónaband sé ekki það sama og fullkomið samband, ef sambandið gengur vel þá þarftu ekki endilega að giftast makanum þínum. Scarlett segist hafa gift sig afar ung, það var mjög rómantískt og hún elskaði það að vera gift.
Hún lítur þó öðruvísi á hlutina í dag, ef sambandið fúnkerar þá þýði það ekki endilega hjónaband. Scarlett segist ekkert hugsa um hjónaband þessa dagana það er ekki efst í forgangsröðinni hjá henni að giftast og þegar hún er spurð hvort hún muni gifta sig aftur þá segir hún að það sé ekki það mikilvægasta í lífi hennar núna. Kannski finnist sumum það skrýtið en hún hugsar bara um það ef fólk spyr hana út í það.
Scarlett er barnlaus, vinnur mikið og er í góðu sambandi núna, hún ætlar sér ekki að eiga börn á næstunni og vill fókusera meira á vinnuna og vinna betur í sambandinu sínu, henni finnst gaman að vinna og mesta orka stjörnunnar fer í að sinna henni í augnablikinu.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig