Jennifer Lopez er nú á fullu í heimstúrnum sínum “Dance Again” og er kærastinn Casper Smart aðal danshöfundur og dansari ferðarinnar.
En brestir eru þó komnir í sambandið og ku Jennifer vera orðin þreytt á því að vera “barnapía” Caspers en aldursmunurinn þeirra er nítján ár!
Casper hangir öll kvöld eftir tónleika með hinum dönsurunum og tjúttar fram á nótt á meðan Jennifer er ekkert nema fagmennskan, sinnir börnunum sínum og passar upp á að fá næga hvíld á milli tónleika.
Tvíburar Jennifer eru fullt starf fyrir eina konu en Max og Emme eru orðin fjögurra ára og hafa verið út um allt svið og meðal annars skemmt einhver tæki og tól með leik sínum þannig að Jennifer á fullt í fangi með að sinna þeim.
Casper var mögulega hinn fullkomni “rebound” gæi fyrir Jennifer á sínum tíma en núna vill hún leita á önnur mið og talið er líklegt að hann fái að taka pokann sinn þegar fyrsti hluti heimstúrs Jennifer og Enrique Iglesias lýkur í Miami í ágúst.
Eftir það munu þau fara til Evrópu og byrja í Portúgal snemma í október. Þá er spurning hvort Casper þurfi að fá sér nýja vinnu?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig