Það hefur verið nóg að gera hjá slúðurfjölmiðlum að afla upplýsinga um Tom Cruise og Katie Holmes en hér kemur samantekt vikunnar af fréttum um hjónaleysin.
Bíbí var ekki lengi að koma með fréttir af staðfestum skilnaði og má lesa þá frétt hér. Næstu daga var búið að grafa ýmislegt upp og 7 staðreyndir um skilnaðinn komu á yfirborðið. Nokkrum dögum síðar kom það í ljós að Katie var sannarlega ekki “gold digger” eftir allt saman og fær nánast EKKERT út úr skilnaðinum.
Sama dag og Tom Cruise varð fimmtugur ákveður Katie að fjarlægja giftingarhringinn og gera það opinbert að hún væri skilin við afmælisbarnið og daginn eftir að Tom fagnaði fimmtugsafmælinu sínu án Katie og Suri birtir Forbes lista yfir ríkustu karlleikara í Hollywood. Hver trónir þar á toppnum, enginn annar en Tommy Boy!
Katie Holmes varð fræg á einni nóttu þegar hún lék í Dawson’s Creek og Tom bannaði henni að leika í kvikmynd byggða á þáttunum en Katie var orðin gríðarlega spennt fyrir því að fá að hitta gamla leikarahópinn aftur og fá að leika. Svo vill svo skemmtilega til að Katie er forsíðustúlka ELLE í ágústmánuði og hefur hún greinilega verið byrjuð að undirbúa það að skilja við Tom þegar viðtalið var tekið-enda forðaðist hún spurningar um hann og sneri þeim þannig að hún gæti talað um sjálfa sig.
Að lokum fékk Katie NÓG af stjórnsemi Vísindakirkjumannsins Tom Cruise og ákvað að skilja við hann -enda mátti hún varla stíga eitt skref eða anda án þess að fá leyfi frá honum og hvaða kona vill það?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig