Salmay Hayek minnir á sixtís kynbombu þar sem hún pósar framan á nýjasta heftinu af Bandaríska tímaritinu Allure.
Í viðtalinu segir hún m.a. að konur ættu flestar að vera orðnar kynþokkafyllri á fertugsaldrinum þar sem þær þekkja sjálfar sig betur á þessum aldri.
“Maður er mikið vissari um sig hvað kynþokkann varðar og þannig á það að vera,” segir Salma.
Hún talar líka um að það sé sama hversu falleg kona sé ef hún kann ekki að ganga á háum hælum. “Kona sem hreyfir sig eins og kjúklingur… það mun aldrei verða kynþokkafullt.”
Hér má sjá nokkrar myndir af þessari flottu bombu bæði úr myndatöku og baksviðs en myndirnar tók stjörnuljósmyndarinn Mario Testino.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.