GOLDEN GLOBE: Í gær skrifaði Vala stutta úttekt á Golden Globe verðlaunahátíðinni sem fór fram sl sunnudag og var ekki allskostar sátt við kjólana en mér finnst þessir hinsvegar koma nokkuð vel út.
Vintage bleikur litur, eða rósarbleikur, var allsráðandi á hátíðinni eins og sjá má af þessum myndum og kjólarnir í raun jafn misjafnir og þeir eru margir.
Sandra Bullock tekur sig vel út með toppinn í rómantískum fölbleikum kjól með silfruðu skrauti og Scarlett Johanson var á svipuðum nótum.
Pretty in Pink…
Díana Bjarnadóttir útlitsráðgjafi og stílisti hefur margra ára reynslu við að aðstoða fólk með fataval. Hún starfaði meðal annars á Ítalíu og í London þar sem hún var stílisti stjarnanna hjá Giorgio Armani og Gucci.
Hefur einnig verið búsett í svíþjóð, Hollandi og á Selfossi en býr nú í Reykjavik. Díana er einnig með menntun í förðunarfræði. Greinar og ljósmyndir Díönu hafa m.a. verið birtar í tímaritunum Veggfóður, Ský og Smáralindarblaðinu. Díana er fædd 1. maí og er því naut.