Ryan Lochte er á allra vörum þessa dagana en sundkappinn kom sá og sigraði á Ólympíuleikunum í London!
Ryan varð 28 ára gamall þann þriðja ágúst síðastliðinn og var haldin heljarinnar veisla í London á veitingarstaðnum Planet Hollywood af því tilefni.
Þar fagnaði hönkinn ásamt fleiri Ólympíuförum og gleðin hélt síðan áfram á næturklúbbnum Mahiki en afmælisbarnið Ryan var alsæll og skælbrosandi þegar hann gekk út af næturklúbbnum.
Ryan er einhleypur og hefur lítinn tíma fyrir kærustu en hver veit kannski kynnist hann draumadísinni á næstunni -það má síðan alltaf láta sig dreyma, spurning að splæsa í miða til London? Nei segi svona…
Hér að neðan eru myndir af Ryan og það eina sem ég segi er:
NJÓTTU!
______________________________________________________
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig