Grínistinn Russell Brand er kolfallinn fyrir kryddpíunni með rauðu lokkana sjálfri Geri Halliwell.
Ein aðalástæða þess að Russell er yfir sig skotin í kryddpíunni er að hún neytir ekki áfengis og hefur verið edrú í þónokkurn tíma eins og Russell sjálfur en sagan segir að Russell hafi sótt um skilnað við fyrrverandi konu sína Katy Perry vegna þess hversu dugleg hún var í skemmtanalífinu. Russel kaus hinsvegar sjálfur að slaka á og fara út að borða eða njóta þess að vera einn með konunni sinni.
Geri sagði einnig skilið við sinn mann vegna lífstíls hans -henni fannst sá lífstíll ekki henta henni og dóttur hennar.
Russell finnst aðrir hlutir í lífinu mikilvægari en að drekka og djúsa öll kvöld. Fyrir um áratug síðan voru hann og Geri bæði grimm partýljón í London en núna sækja þau fína og rólega staði saman og njóta lífsins.
Geri sneri lífstíl sínum við þegar hún eignaðist dóttir sína Bluebell og Russell hefur verið edrú í tíu ár. Þau eru á sama stað í lífinu, vilja njóta þess að vera saman og stunda jóga og hugleiðslu.
Þau skelltu sér meðal annars í skoðunarferð í Bretlandi um síðustu helgi og virtust skemmta sér konunglega saman en Bluebell litla var með í ferðinni.
Hlutirnir ganga hratt fyrir sig hjá turtildúfunum sem hittust aftur eftir langan tíma á Ólympíuleikunum og hafa neistarnir flogið á milli þeirra síðan.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig