Robert Pattinson var afar ástfanginn og tilbúin að fara á skeljarnar til að biðja Kristen Stewart að giftast sér en síðan viðurkenndi hún framhjáhald og hafa þau ekki talast við eftir það.
Samkvæmt heimildum vestanhafs var Robert farin að íhuga bónorð og hefði hann beðið Kristen á næstu vikum ef hún hefði ekki haldið framhjá honum. Hann var afar hamingjusamur, þau bjuggu saman í Los Angeles í fallegu húsi og lífið lék við þau.
Núna talast parið ekki við. Þau hafa bæði flutt út úr húsinu sem þau áttu saman og tala bara saman í gegnum hatursfull textaskilaboð. Robert er reiður og sár og engin sátt í sjónmáli.
Lokamynd Twilight seríunnar verður frumsýnd í vetur og verður án efa erfitt fyrir parið að mæta saman á rauða dregilinn þar sem að kynningarherferð fyrir myndina hefst á fullu í september.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig