Hollywood logar í slúðursögnum og fréttum af framhjáhaldi Kristen Stewart með leikstjóranum Rubert Saunders en í apríl síðastliðnum birtist viðtal við Robert Pattinson í Vanity Fair og þar sagði hann skoðun sína á framhjáhaldi.
Robert sagðist ekki skilja framhjáhald. Honum þykir afar einkennilegt hvernig manneskja getur haldið úti tveimur samböndum í einu. Hann var spurður að því hvort að hann myndi vera með giftri konu og þá svaraði hann:
“Lífið er ekki bara svart og hvítt, það eru hjón sem sjá ekki hvort annað svo mánuðum skiptir – er það hjónaband? En það er eitt sem ég skil ekki það er af hverju fólk heldur framhjá”.
Hann segist þó skilja að fólk laðist að öðru fólki en maka sínum en eins og áður segir skilur hann ekki hvernig er hægt að halda úti tveimur samböndum í langan tíma. Slíkt sé of mikið fyrir eina manneskju – það geti ekki gengið til lengdar.
Hann segist einnig EKKI vera “casual” gaur sem taki framhjáhaldi á léttu nótunum: “Ef ég kýs að vera með einhverri þá er það vegna þess að ég vill það virkilega. Þegar ég er í sambandi þá er ég 100% skuldbundinn manneskjunni sem ég er í sambandinu með”.
Þá er bara að bíða og sjá hvort Rob fyrirgefi Kristen.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig