Leikararnir Kristen Stewart og Robert Pattinson byrjuðu að ‘deita’ aftur eftir að Kristen hélt framhjá Robert í fyrra en núna er hann kominn með nóg og vill slíta sambandinu.
Parið ætlaði að fara saman á Golden Globe verðlaunahátíðina en Robert sagðist vilja fara einn þegar Kristen var komin til Los Angeles.
Honum finnst hlutirnir ganga of hratt fyrir sig núna og er ennþá í sárum eftir að Kristen sveik hann.
Kristen skilur hann fullkomnlega en er samt miður sín yfir þessu öllu saman.
Robert vill að þau verði vinir aftur en ekki par.
Vinir hans hafa sett mikla pressu á hann að slíta sambandinu og einbeita sér að framanum í staðinn fyrir að eyða púðri í stelpuna sem sveik hann.
Robert á jafnframt erfitt með að treysta Kristen eftir framhjáhaldið og núna vill hann bara fá frið og einbeita sér að leiklistinni og einbeita sér að hinu góða í lífinu. Robert er þessa dagana í Ástralíu að sinna ýmsum málum og ætlar að nota tímann sem þau eru ekki saman til að hugsa málin almennilega.
…og ég mun að sjálfsögðu koma með nýjar heitar fréttir ef eitthvað gerist þegar fram líða stundir. Fylgstu með!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig