Twilight leikarinn Robert Pattinson er ekki á leiðinni í annað samband ef marka má vini hans…
Kristen Stewart og Robert Pattinson slitu samvistum í sumar eftir að Kristen hélt framhjá Rob með fyrrum leikstóra sínum. Robert var afar sár og reiður og vildi helst ekki vita af henni.
Núna ætlar Robert að einbeita sér að ferlinum og hefur minni en engan áhuga á því að fara á stefnumót eða kynnast stelpum, Kristen vonar og biður til Guðs á hverju kvöldi að Robert taki við sér aftur.
Lokamyndin í Twilight seríunni verður frumsýnd á næstunni og margir velta því fyrir sér hvort þau mæti bæði á aðalfrumsýningarnar en þá verða fjölmiðlafulltrúar þeirra örugglega búnir að hagræða því þannig að þau hittast ekki á rauða dreglinum.
Ó flókna líf í glysborginni!
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig