Eru þau saman, eru þau ekki saman, ætlar hann að hundsa hana endalaust, hún grábiður hann að taka sig aftur og biður til Guðs en hann ætlar að einbeita sér að vinnunni.
Sambandsslit Roberts Pattinson og Kristen Stewart er orðin ein hringavitleysa í slúðurmiðlum og enginn virðist vita hvað er í gangi hjá þeim. Þau hittust tvö saman í vikunni og samkvæmt heimildum ákváðu þau að sættast og byrja aftur saman því að þau sáu að þau gætu ekki lifað án hvort annars! Vinir Roberts eru ekki ánægðir með drenginn þar sem þeim finnst Kristen hafa niðurlægt hann og sært hann djúpu sári en Robert var afar reiður fyrst um sinn og vildi ekkert með Kristen hafa.
Ég skrifaði um það hér að Robert ætlaði að einbeita sér að vinnunni á meðan Kristen bæði til Guðs á hverju kvöldi að hann taki sig aftur en núna veit maður hreinlega ekki hverju á að trúa.
Jæja þá er bara að bíða og sjá hvort þau sættist og byrji aftur saman- hvað ætli að Twilight aðdáendurnir segi við því?
… fylgist með.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig