Nýjustu Hollywoodfregnir herma að Robert og Kristen séu byrjuð saman aftur og ekki nóg með það heldur eru þau farin að búa saman!
Þau virðast bara ekki getað verið án hvors annars og bla bla bla! Ég er eiginlega farin að halda að þetta sé allt saman eitt allsherjar plott til þess að fá meiri athygli út á loka myndina í Twilight seríunni, nei segi bara svona -hvað veit ég??
En annars er Robert samt ekki alveg búin að fyrirgefa Kristen og ætlar sér að fara varlega í sakirnar til að byrja með og sjá hvernig samband þeirra þróast.
Eftir tveggja mánaða aðskilnað eru þau sameinuð á ný en svífa þó ekki um á bleiku skýji, heldur vinna í sínum málum og ætla sér að vera saman.
Þetta fer að verða sagan endalausa með þessi tvö, hvað kemur næst -ætli Kristen verði ekki fljótlega ólétt?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig