Rihanna er dugleg að taka myndir af sér og setja þær á Twitter og í þetta sinn sýnir hún okkur smá “sneak peak” af sjálfri sér í Geishu líki við tökur á myndbandinu við lagið “Princess Of China” sem hún syngur með hljómsveitinni Coldplay.
Það verður að segjast að stúlkan er svakalega flott á þessum myndum og hlakka ég mikið til þess að sjá myndbandið þegar það verður frumsýnt!
Myndirnar að neðan eru teknar af Twitter síðu Rihönnu og hægt er að fylgja henni á Twitter á slóðinni: twitter.com/#!/rihanna
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig