Hana vantar nýjan rass og hún vill ekki láta ástina særa sig aftur.
Rihanna er guðdómlega fögur í myndaþætti sem birtist nú í nýjasta heftinu af Harpers Bazaar.
Þar talar hún meðal annars um að vera svolítill “rebel” í sér og og það skíni í gegnum tónlistina hennar, tísku, tattú og síðast en ekki síst hárið sem skiptir oft um liti og breytist eins og vindáttin.
Rihanna segir jafnframt frá því að hún hleypi fólki ekki of nálægt sér. Hún kynnist einhverjum sem hún nær góðu sambandi við en þegar henni finnst viðkomandi vera kominn of langt inn á hennar þægindasvið þá bakkar hún og slítur á tengslin.
Rihanna talar einnig um það þegar hún varð ástfangin. Hún varð svo yfir sig ástfangin og gat ekkert við því gert. Leið alveg stórkostlega þegar á því stóð og allt líf hennar breyttist. Hún lýsir því hvernig meira að segja allt umhverfið varð öðruvísi en segist jafnframt ekki vilja finna eins mikið til aftur eins og þegar hún varð ástfangin eða þegar þau slitu sambandinu. Það sé sársauki sem hún sé orðin mjög hrædd við.
Að lokum segir bomban að sig vanti alveg rass. Hana langar í nýjan því hennar eigin er víst ekki alveg að standa undir væntingum. Já viti menn?
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig