Stórstjörnurnar Kate Moss og Rihanna eru í ögrandi myndaþætti sem tekinn var af ljósmyndaranum Mario Testino í desemberútgáfu V Magazine.
Dömurnar eru í engum eða mjög léttum fötum, samfestingum, ögrandi stellingum og stilla sér upp eins og fagmenn. En hvað finnst þér. Eru þetta of ögrandi myndir eða bara í anda þessara stórstjarna, nú eða hinnar svonefndu ‘klámvæðingar’?
Dæmi hver fyrir sig….
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig