Nú styttist í að Rihanna og Chris Brown geri samband sitt opinbert en þau byrjuðu nýlega að hittast aftur eftir að hafa hætt saman fyrir 3 árum.
Rihanna, sem vinnur nú að næst plötu, Unapologetic, ætlar að opinbera samandið við Chris þegar þeirri vinnu lýkur.
“Hún vinnur á fullu í hljóðveri þessa dagana en er í stöðugu sambandi við Chris og ætlar að gera opinbert um leið og hún er búin að skila af sér. Þegar það er klárt munu þau byrja að sjást opinberlega saman aftur,” sagði heimildarmaður við slúðurpressuna vestanhafs.
Þetta verður líklegast eitthvað skrautlegt.
Smelltu HÉR til að lesa meira um Rihönnu…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.