Rihanna og Chris Brown eru farin að stinga saman nefjum aftur og hafa látið ást sína í ljós opinberlega að undanförnu.
Parið sást í keleríi í partýi sem var haldið á einkaheimili í Beverly Hills í tilefni af nýrri vídeóheimasíðu Chris sem heitir Qubeey.com.
Rihanna og Chris létu fara vel um sig í VIP setustofunni, kysstust, deildu sígarettu, drukku saman drykki og voru afar ástúðleg hvort við annað. Ekki þorði parið þó að fara saman á bíl heim. Þau brunuðu í sitthvoru lagi í burtu ásamt vinum þegar partýinu lauk.
Rihanna hefur þurft að sæta mikilli gagnrýni undanfarið vegna ummæla sinna um Chris í viðtölum en hún segist elska hann af öllu sínu hjarta.
Kannski að Chris hafi lært sína lexíu eftir að hann sló Rihönnu og særði hana alvarlega. Ekki gott að segja.
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig