Söngkonan Rihanna virðist vera komin með þema í tímaritum og það er að vera nakin. Hér skrifaði ég um það þegar hún og Kate Moss voru berar í V-Magazine.
Nýjasta rósin í hnappagat söngkonunnar er forsíða GQ, tímaritið ber nafnið “Man Of The Year” en enginn karlmaður er á síðunni heldur Rihanna, allsber í leddara. Daman er í hörkuformi -því verður ekki neitað og hún er alsæl með forsíðuna en hún Twittaði myndir úr tímaritinu af sjálfri sér og spurði aðdáendur sína hvaða mynd væri uppáhald þeirra.
Á myndunum má sjá tattú söngkonunnar sem sjaldan sjást á bringunni hennar og mjöðmunum.
Nýjasta plata söngkonunnar er væntanleg 19. nóvember og ber hún nafnið “Unapologetic” en á henni er meðal annars dúett með hinum ofbeldishneigða fyrrum/núverandi kærasta Chris Brown.
Nýjasti smellur hennar “Diamonds” hefur slegið rækilega í gegn og hér að neðan getur þú séð myndbandið við lagið. Frábært lag!
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=lWA2pjMjpBs[/youtube]
Rannveig er útskrifuð sem hársnyrtir en leggur nú stund á nám í fjölmiðlafræði. Henni finnst fátt skemmtilegta en að stunda margskonar líkamsrækt og er ekki hrædd við það að prófa nýjungar í þeim efnum, Rannveig er þessi týpíska meyja sem verður að hafa allt tip top, ofur pjöttuð að mati margra en lætur sér fátt um það finnast. Hún á tvo stráka og er harðgift.
Fylgdu Rannveigu á Instagram rannveigjonina og á Twitter @MissisRannveig