Kjaftasaga hefur gengið fjöllum hærra um að Rihanna ætli að fá sér sílikon í brjóstin til að þóknast ofbeldismanninum Chris Brown.
Bandaríska slúðurblaðið National Enquire sagði frá þessu en Chris og Rihanna hafa sést mikið saman upp á síðkastið:
Heimildarmaður NE sagði Chris leita ljósum logum að besta lýtalækninum í Hollywood til að stækka brjóst fyrrum kærustunnar sem hann svermir nú fyrir.
Fulltrúi Rihönnu segir þetta hinsvegar algjört kjaftæði en Rihanna hefur oft sagt frá því að hún er logandi hrædd við að fara undir hnífinn.
Af myndinni hér til hliðar að dæma er hinsvegar erfitt að segja til um hvort hún sé búin að fara eða ekki.
Mér sýnist það reyndar… Hvað heldur þú?
Pjattið á Facebook…
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.